Icelandic(IS)English (United Kingdom)
Auglýsing
Skugga..... Baldur
Föstudagur, 27. janúar 2012 16:59

skuggibaldurÞeir eru alltaf flottir bræðurnir Skuggi og Baldur.  Þrátt fyrir ungan aldur hafa þeir skoðað heiminn.  Baldur fékk sér bílfar um Ölfusið og var týndur í viku en fannst sem beturfer og dafnar nú vel.  Skuggi lenti í einhverju hnjaski, vitum ekki hvar né hvernig, en er nú óðum að ná sér.  Þeir eru uppátektarsamir og kátir, hreint bráð skemmtilegir.

Share

Facebook   
 
Vetur konungur
Föstudagur, 27. janúar 2012 16:54

vetur20121Vetur konungur hefur ráðið ríkjum og oft á tíðum verið erfitt að hreyfa við hrossum einkum vegna ísa.  Það var létt yfir stóðinu þegar við rákum heim um daginn. 

 

 

 

 

Share

Facebook   
Nánar...
 
Haukur Baldvinsson
Föstudagur, 20. janúar 2012 15:40

FalurgullHaukur Baldvinsson
Haukur hefur verið mikið á keppnisvellinum síðustu ár og þá mest í 5gang og skeiðgreinum. Hann varð m.a Íslandsmeistari í gæðingaskeiði 2011 á Fal frá Þingeyrum en þeir hafa verið sigursælir saman í gæðingaskeiði og 5 gang síðustu ár. Haukur og fjölskylda eiga og reka Austurás sem er staðsett rétt utan við Selfoss en þar fara fram tamningar og þjálfun ásamt ræktun hrossa. Haukur var í Meistardeild Vís 2007 og 2008. 

Share

Facebook   
 
Eyvindur Mandal Hreggviðsson
Föstudagur, 20. janúar 2012 15:26

Eyvi Kynnum til þáttöku Eyvind Mandal Hreggviðsson.  Eyvindur hefur alist upp í hestamennsku.  Hann hefur verið virkur í sýningum og keppni í Svíþjóð frá barnsaldri.  Hann starfar nú í Auðsholtshjáleigu við tamningar og þjálfun. 

Share

Facebook   
 
Meistaradeildin að hefjast
Föstudagur, 20. janúar 2012 15:24

graenholl20111Meistaradeildin er að hefjast og er lið Auðsholtshjáleigu tilbúið í slaginn.  Keppnin hefst fimmtudaginn 26 janúar með  4-gangi.  Það er auðséð á tíðari ferðum knapa að Ingólfshvoli á síðustu dögum að það gætir vaxandi spennu.  Þó svo að það hafi nú ekki komið fram á skjálftamælum. 

Lið Auðsholtshjáleigu er skipað þeim:

Þórdísi Erlu Gunnarsdóttur liðsstjóra, Eyvindi Mandal Hreggviðssyni, Lenu Zielinski og Hauki Baldvinssyni.

Share

Facebook   
 


 
 
© 2011 Horseexport.is / Hafið samband