|
|
Thursday, 17 May 2012 08:09 |
|
|
Dalvör frá Auðsholtshjáleigu kastaði jörpum hesti í morgun. Faðirinn er Sær frá Bakkakoti. Sá jarpi dafnar vel og er duglegur að ná sér í næringu.
Heldur hefur hlýnað og fór vel um hryssurnar okkar á fæðingadeildinni.
Mynd: Krissa
|
Share
|
|
Read more...
|
|
Wednesday, 16 May 2012 14:57 |
|
|
Ríma frá Auðsholtshjáleigu IS2007287053 undan Gaum frá Auðsholtshjáleigu og Limru frá Laugarvatni. Fór í kynbótadóm í morgun og náði einkunn inn á Landsmót. Hún fékk fyrir sköpulag 8,33, fyrir kosti 7,89 og í aðaleinkunn 8,07 (fyrir yfirlit). Sýnandi var Þórdís Erla Gunnarsdóttir.
Mynd: Krissa
|
Share
|
|
Read more...
|
|
Wednesday, 16 May 2012 07:00 |
|
|
Það var kalt í veðri, en ekki hægt að bíða lengur með að koma í heiminn. Þessi spræki foli fæddist í morgun, hann er undan heiðursverðlaunahryssunni Vordísi frá Auðsholtshjáleigu og gæðingnum Kristal frá Auðsholtshjáleigu. Gullfallegur rauðblesóttur hestur, sem umsvifalaust hlaut nafnið Hektor eftir langafa sínum.
Mynd: Krissa
|
Share
|
|
Read more...
|
|
Wednesday, 16 May 2012 06:55 |
|
|
Nú er mætt með kynbótahrossin eitt af öðru til dóms. Í rokinu á mánudaginn ákváðum við að fara með Hervar frá Auðsholtshjáleigu 4.vetra í byggingardóm. Hann kom út með 8,09. Í gær þriðjudag fórum við með 4 hross. Sprota frá Enni (4.vetra ræktaðan af Eindísi í Enni og Krissu Auðsholtshjáleigu) í byggingardóm,hann fékk 8,43 glæsifoli. Hending frá Auðsholtshjáleigu fór í reiðdóm og hækkaði hæfileika, einkunn fyrir yfirlit er 7,95 fyrir kosti, sýnandi Eyvindur Mandal Hreggviðsson. Kristall frá Auðsholtshjáleigu hækkaði frá síðasta ári fékk 8,26 þar af 8,4 fyrir sköpulag, 9,5 fyrir stökk, 9,0 fyrir fegurð í reið, tölt, háls og samræmi ,sýnandi Guðmundur Björgvinsson. Virðing frá Auðsholthsáleigu hækkaði einnig mikið frá síðasta ári fékk 8,20 út þar af 8,37 fyrir kosti, sýnandi Þórdís Erla Gunnarsdóttir. Þau Kristall og Virðing hafa náð einkunn inn á Landsmót. Nánar verður gerð grein fyrir ættum og dómum hrossanna eftir yfirlit.
|
Share
|
|
Read more...
|
|
Tuesday, 15 May 2012 09:01 |
|
|
Þeir fóru hratt yfir drengirnir úr Ölfusinu í 150 m skeiði á íþróttamóti Sleipnis. Góðir tímar náðust sérstaklega þegar litið er til þess hve snemma árs tímarnir eru að nást, tímar í skeiði fara yfirleitt batnandi þegar líður á sumarið.
1. Guðmundur Björgvinsson/Perla frá Skriðu 14,57
2. Teitur Árnason/Veigar frá Varmalæk 15,77
3. Eyvindur Hrannar Gunnarsson/Lilja frá Dalbæ 15,93
Mynd: Lilja, Hrannar, Gummi og Perla/Krissa
|
Share
|
|
|
|
|