|
Föstudagur, 20. janúar 2012 15:24 |
|
|
Meistaradeildin er að hefjast og er lið Auðsholtshjáleigu tilbúið í slaginn. Keppnin hefst fimmtudaginn 26 janúar með 4-gangi. Það er auðséð á tíðari ferðum knapa að Ingólfshvoli á síðustu dögum að það gætir vaxandi spennu. Þó svo að það hafi nú ekki komið fram á skjálftamælum.
Lið Auðsholtshjáleigu er skipað þeim:
Þórdísi Erlu Gunnarsdóttur liðsstjóra, Eyvindi Mandal Hreggviðssyni, Lenu Zielinski og Hauki Baldvinssyni.
|
Share
|