|
Þriðjudagur, 14. febrúar 2012 10:41 |
|
| Um helgina hélt Hrossaræktarfélag Hrunamanna upp á 100 ára afmæli. Það er stórkostlegt að í 100 ár hafi verið haldið úti skipulögðu ræktunarstarfi af samtökum sem þessum. Hátíðin hófst með málþingi þar sem Gunnar Arnarson og Ágúst Sigðursson fluttu erindi. Að erindum loknum voru kaffiveitingar og síðan var gestum gefinn kostur á fyrirspurnum. Fjölmenni var og líflegar umræður. Hátíðarkvöldverður var síðan í félagsheimili staðarins, þar var heldur en ekki líf og fjör. Frábær matur, söngur og skemmtun hin besta. Hrossaræktendur í Biskupstungum færðu grönnum sínum góðar kveðjur og fallegan grip að gjöf, Hrossaræktarsamtök Suðurlands færðu þeim blóm og afmæliskveðjur. Einnig stóð upp "borgarstjórinn" og færði þeim bikara að gjöf auk ánaða óska. Hrunamenn takk fyrir okkur, innilega til hamingju og megi starf ykkar blómstra um ókomna tíð. |
Share
|