Icelandic(IS)English (United Kingdom)
Auglýsing
Útflutningur fyrstu tvo mánuði ársins
Miðvikudagur, 22. febrúar 2012 11:25

reksturSamkvæmt upplýsingum frá Bændasamtökum Ísalnds stefnir útflutningur fyrstu tvo mánuði ársins í 303 hross.  Á sama tíma í fyrra fóru frá landinu 185 hross.  Þannig að það sem af er ári er aukning í útflutningi hrossa um 64%.

Share

Facebook   
 
Breyting á flugi til Norrköping og Billund
Miðvikudagur, 22. febrúar 2012 10:02

hestaflug109Breytingar hafa orðið á flugi til Norrköping og Billund.  Áætlað var flug til Norrköping 04.03 en það færist til og er nú áætlað 18.03.  Flug sem áæltað var til Billund 18.03 er nú fært til 01.04.

Flight to Norrköping is canceled the 4th of  Mars and moved to the 18th of Mars.  Flight to Billund is moved from the 18th of Mars to the 1st of April.

Share

Facebook   
 
Hrossaræktarfundur í Ölfushöll
Þriðjudagur, 14. febrúar 2012 11:33

limraMunið hrossaræktarfuninn í Ölfushöllinni annað kvöld 15.02.2012.  Rætt verður um fyrirhugaðar breytingar á kynbótasýningu Landsmóts samkvæmt skipun fagráðs.  Fundurinn hefst klukkan 20.00

 

Mynd: Limra frá Laugarvatni og afkvæmi/Krissa

Share

Facebook   
 
Hrossaræktarfélag Hrunamanna 100 ára
Þriðjudagur, 14. febrúar 2012 10:41

gamli1 Um helgina hélt Hrossaræktarfélag Hrunamanna upp á 100 ára afmæli.  Það er stórkostlegt að í 100 ár hafi verið haldið úti skipulögðu ræktunarstarfi af samtökum sem þessum.  Hátíðin hófst með málþingi þar sem Gunnar Arnarson og Ágúst Sigðursson fluttu erindi.  Að erindum loknum voru kaffiveitingar og síðan var gestum gefinn kostur á fyrirspurnum.  Fjölmenni var og líflegar umræður.  Hátíðarkvöldverður var síðan í félagsheimili staðarins, þar var heldur en ekki líf og fjör.  Frábær matur, söngur og skemmtun hin besta.  Hrossaræktendur í Biskupstungum færðu grönnum sínum góðar kveðjur og fallegan grip að gjöf, Hrossaræktarsamtök Suðurlands færðu þeim blóm og afmæliskveðjur.  Einnig stóð upp "borgarstjórinn" og færði þeim bikara að gjöf auk ánaða óska.  Hrunamenn takk fyrir okkur, innilega til hamingju og megi starf ykkar blómstra um ókomna tíð.

Share

Facebook   
 
Þjálfun keppnishrossa og knapa
Miðvikudagur, 08. febrúar 2012 14:13

namskeid2012Núna um helgina byrjaði námskeið sem Þórdís Erla er með í samstarfi við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.  Námskeiðið snýst um þjálfun keppnishrossa og knapa.  Bráðskemmtilegur 12 manna hópur mætti til leiks með spennandi hesta.  Verkefnið er áhugavert og verður gaman að fylgjast með knöpum og hestum næstu vikurnar.

Mynd: Þórdís Erl

 

 

Share

Facebook   
 


 
 
© 2011 Horseexport.is / Hafið samband